Translations:Vaivasvata Manu/5/is
Í bók sinni Masters and the Path (Meistararnir og vegurinn) lýsir C. W. Leadbeater Vaivasvata sem „konunglegri mannsmynd, ... hávaxnastur allra fullnuma, vel yfir tvo metra á hæð og samsvaraði sér vel. Hann er fulltrúi kynstofns okkar, frumgerð hans, og sérhver aðili þessa kyns er afkomandi hans. Manú hefur mjög tilkomumikla og kraftmikla andlitsdrætti, arnarnef, brúnt bylgjótt alskegg, brúneygður og hefur stórkostlegt höfuðlag með ljónslegum þokka. ... Hann býr um þessar mundir í Himalajafjöllum.“[1]
- ↑ C. W. Leadbeater, Masters and the Path (Adyar, Madras, Indland: Theosophical Publishing House, ca.1959), bls. 40–41.