Translations:Thomas More/13/is

From TSL Encyclopedia

Vinasnauður og embættislaus bjó More og fjölskylda hans við sára fátækt. Eftir stóð að hann hafði móðgað Hinrik vegna hinnar opinberu vanþóknunar kanslarans á honum. Konungur leitaðist því við að vanvirða More og endurheimta þannig konunglega æru sína. Þegar Herra Tómas hafnaði því afdráttarlaust að sverja eið að samþykki sínu fyrir yfirráðum Hinriks sem æðsta yfirmanni hinnar nýju ensku kirkju var hann fangelsaður í hinu skelfilega Tower of London. Þrátt fyrir áreitni lögfræðinga konungsins, neitaði More staðfastlega að slaka á afstöðu kirkjunnar varðandi hjúskaparbrot konungs. Hins vegar forðaðist hann með stjórnkænsku sinni að koma með beinar ásakanir gegn konunginum. Þess vegna var ekki hægt að kæra hann fyrir lögbrot og taka af lífi. En andstaða hans gegn ráðabruggi konungsins var þögull vitnisburður um syndugt ranglæti konungs.