Translations:Sarasvati/11/is
Hið yfirnáttúrulega handanlæga eðli Sarasvati ... birtist einnig í farskjóta hennar, svaninum. Svanurinn er tákn um andlega upphafningu og fullkomnun í hindúasið.... Sarasvati, sitjandi klofvega á svani sínum, gefur til kynna vídd mannlegrar tilveru sem rís upp yfir hina efnislegu, náttúrulegu veröld. Heimur hennar markast af fegurð, fullkomnun og náð; það er ríki sem skapað er af listrænum innblæstri, heimspekilegri innsýn og uppsafnaðri þekkingu, sem hefur gert mönnum kleift að betrumbæta náttúrulegan heim sinn svo að þeir hafi getað yfirstigið takmarkanir hans. Sarasvati, klofvega á svani sínum, kallar á mannkynið til áframhaldandi menningarlegrar sköpunar og siðmenntaðrar fullkomnunar.... Hún stendur ekki aðeins að baki heiminum og er skapari hans heldur er hún [sjálf] leiðin til að fara handan við heiminn.[1]
- ↑ David Kinsley, Hindu Goddesses: Visions of the Divine Feminine in the Hindu Religious Tradition (Sýnir hins guðdómlega kvenleika í hindúahefðinni) (Berkeley, Kaliforníu: University of California Press, 1986), bls. 62, 141.