Translations:Hatha yoga/4/is
Markmið þess er ekki þjálfun líkamans. Það byggir á guðdómlegum hreyfingum til losunar ljóss í frumum líkamans og frumeindum, í hjarta líkama ykkar sem er jafnvel njörvað þar. Að leysa þetta ljós vinnur gegn eiturefnum, þreytu og fyrirstöðu gegn sigri ykkar. Og þess vegna munuð þið ekki uppskera mikið þó þið æfið endalaust [hatha jóga] nema því aðeins að þið gerið þær í samblandi við hugleiðslu og einbeitingaæfingar. Það mun veita ykkur vörn gegn [óhóflegri] streitu sem fylgir því að bera byrðar heimskarmans og byrði þessarar ákveðnu gerðar óreiðuorku sem er einkennandi fyrir vestræna sveiflutíðni sem stafar frá múgvitund stjórnlausra geðlíkama og orkusóun og kæruleysislegri misnotkun á huglíkamanum.