Translations:Four lower bodies/4/is

From TSL Encyclopedia

Líta má á farartækin fjögur sem fjögur sigti eða trumbur, hver inni í annarri. Ljósvakalíkaminn er stærstur; innan hans er huglíkaminn, síðan geðlíkaminn og loks efnislíkaminn. Ljós Krists-vitundarinnar streymir í gegnum punktamynstur sem er gatað á efnivið hvers líkama mannsins. Punktamynstur hvers líkama er mismunandi. (Þeir eru líka breytilegir frá einum einstaklingi til annars í samræmi við hið guðlega forsnið.) Samt sem áður sjá ákveðnir samsvarandi lyklar innan mynstranna til þess að orka hinna fjögurra „trumba“ geri hverjum einstaklingi kleift að samþætta fjórar gerðir líkamsstarfseminnar við persónuleikann. Aðeins þegar götin eru í fullkomnu samræmi (þegar götin á „sigtunum“ fjórum eru beint á móti hvert öðru) getur ljósið streymt afburðarvel og staðfastlega. Þegar götin á „sigtunum“ eru algjörlega ósamræmd getur ljósið í besta falli aðeins síast í gegn og einstaklingurinn verður sljór og tregur og óskilvirkur.