Translations:Four lower bodies/1/is

From TSL Encyclopedia

Fjórir lægri líkamar eru fjögur hylki á fjórum aðgreindum tíðnisviðum sem umlykja sálina – farartæki sálarinnar á ferð hennar í jarðlífinu í tíma og rúmi: Farartækin sem Guð útvegaði sér til einstaklingsmiðunar hans á guðsloganum og fyrir tjáningu sálarinnar í heimi efnisformsins. Sem gagnkvæm kraftsvið eru þessir líkamar kjölfestan fyrir stiglækkandi umbreytingu á orku andans sem sameinast sem efni.

Líkamarnir fjórir eru ljósvaka- eða minnislíkami; huglíkami, langana- eða geðlíkami; efnislíkami. Ljósvakalíkaminn er forsniðinn sem gefur sálinni auðkenni sitt og felur í sér minnisskráningu á öllu því sem sálin hefur gengið í gegnum og haft hvatir til. Vitsmunalífið starfar í gegnum huglíkamann; þegar hann hefur verið hreinsaður getur hann verið farvegur fyrir huga Guðs, huga Krists. Langanalíkaminn felur í sér æðri og lægri langanir og skráir allar kenndir. Efnislíkami er sú undrasmíði úr holdi og blóði sem gerir sálinni fært að þróast í efnisheiminum.