Prajna-báturinn

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Prajna boat and the translation is 100% complete.
Other languages:

[úr sanskrít prajna, yfirskilvitleg viska, innsæi, guðleg innsýn] Bátur viskunnar; farartækið eða leiðin sem maður notar til að sigla yfir hafið sem skilur á milli fæðingar og dauða, leiðin til að ná nirvana. Fimmta heit Kvan Jin, tekið úr Dharani Sutra og merkir hin mikla samlíðan sem er að finna í Kristalrósakransi Kvan Jin og hljóðar þannig: „Ég þrái/ég heiti því að stíga skjótt um borð í prajna-bátinn.“

Í búddískri hefð er Kvan Jin stundum sýnd sem skipstjóri á „Frelsunarfleyinu“, þar sem hún ferjar sálir yfir úfinn hafsjó karma þeirra til vestrænnar paradísar Amitabha eða hins Hreina lands, lands sælunnar þar sem sálir geta endurfæðst til að hljóta áframhaldandi fræðslu sem leiðir til hins hinsta markmiðs uppljómunar og fullkomnunar.

Heimildir

Pearls of Wisdom, 31. bindi, nr. 57.