Granat
Granat er eðalsteinn sem geymir ljós þriðja geislans. (Aðrir eðalsteinar þriðja geislans eru rúbín — sem einnig er notaður á sjötta geisla — demantur, rósakvars og bleikt beryl.)
Páll Feneyingur, chohan þriðja geislans, notar þessa eðalsteina til að styrkja og hreinsa blóðið og hjartað líkamlega, sem og til að jarðtengja þriðja geisla Guðs kærleika. Þessir eðalsteinar gagnast okkur við að örva næmni hjartans og búa okkur undir að öðlast gáfur til að greina anda.
Granat er fallegur steinn en hann er mjúkur. Forfeðurnir rugluðu stundum saman granötum og rúbínum og flokkuðu alla rauða steina undir sama heiti. Litir granatsins spanna allt frá djúprauðum yfir í fjólubláan og appelsínubrúnan. Hann finnst einnig gulur eða grænn.
Rithöfundar miðalda nefndu granatinn karbúnkul (carbuncle). Hebreska nafnið yfir karbúnkul var bareketh, sem þýðir „leiftrandi steinn“. Austurlenskar sagnir herma að Nói hafi látið karbúnkul hanga í örkinni til að dreifa ljósi.
Líkt og rúbíninn, var granatinn sagður á miðöldum vara eiganda sinn við aðsteðjandi hættu og erfiðleikum með því að skipta um lit. Verndargripir úr granat voru bornir til varnar gegn illsku og skelfilegum draumum, og til að koma í veg fyrir húðsjúkdóma. Granatinn á sér einnig langa hefð sem meðal til að styrkja blóðið.
Bæði rúbín og granat eru notaðir sem brennideplar (eða beinir) fyrir Hið helga hjarta Jesú og blóð Krists.
-
Granat
-
Forn-grískur granathringur
-
Viktoríönsk granatnæla
-
Granat frá Jaipur, Indlandi
Heimildir
Fyrirlestrar Elizabeth Clare Prophet 2. og 18. október 1987, 11., 12. og 22. febrúar 1988.