Jaspis

From TSL Encyclopedia
Revision as of 08:35, 13 May 2026 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "== Tákn uppljómunarinnar ==")
Other languages:

Jaspis er ógegnsætt kvars í mörgum litum með kristalbyggingu sem er svo fín að engar aðgreindar agnir sjást í smásjá.

Nýja Jerúsalem

Í Opinberunarbókinni er rætt um jaspis í tengslum við Hina nýju Jerúsalem. Jóhannes postuli segir svo frá þeirri borg:

Í Opinberunarbókinni er rætt um jaspis í tengslum við hina nýju Jerúsalem. Jóhannes postuli segir svo frá þeirri borg:

Það sem er undraverðast við þessa sýn er að hún stígur niður. Með öðrum orðum, Jóhannes sér að það er fullkomlega unnt að sameina anda og efni; að við eigum ekki að vera aðskilin að eilífu sem himinn og jörð, eins og í veruleikaheimi tvíhyggjunnat. Tvíhyggja er annað en skautun: skautun þýðir að alls staðar verða að vera hinir tveir kraftar Alfa og Ómega að verki; tvíhyggja merkir aðskilnað, þar sem lífið er alltaf séð í tvennu lagi, en í raun afmáist tvíhyggjan fyrir nærveru Guðs.

Og ljómi hennar var líkur dýrustu steinum, sem jaspissteini, tærum sem kristall.[1]

Þessi tiltekna setning er gefin sem alkemísk íhugun. Ráðlagt er að þú finnir mynd af jaspis, finnir hver alkemísk formúla hans er, hafir þá formúlu skrifaða á blað fyrir framan þig, gangir að altarinu í rannsóknarstofu þinni — þeim stað þar sem þú breytir (alter) orku bæði í anda og efni — og að þú gerist æðstiprestur og vísindamaður um leið og þú sameinast þínum eigin Krists-huga. Þú hugleiðir steininn, kristalinn, hina alkemísku formúlu hans, og lætur Guð gefa þér hið hagnýta svar um hvað skuli gera til að leysa borgarleg vandamál okkar. Það er þarna sem svörin liggja. Svörin er að finna í uppbyggingu sameinda og frumeinda.

Og þannig er hin helga borg, borin þar sem hinn nýi himninn stígur niður til sameiningar við hið nýja efni og til uppfyllingar á boðuninni sem Jesús gaf okkur í Faðirvorinu: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ Sú fullyrðing gefur okkur heildarmarkmið lífs okkar: að tilgangurinn með því að vera á jörðinni sé að láta það sem er í anda birtast í efni.

Jaspis er einnig lýst sem einum af grundvallarsteinum hinnar nýju Jerúsalem:

Og borgin er ferhyrnd, og lengd hennar er jafn mikil og breidd hennar. Og hann mældi borgina með reyrstönginni, tólf þúsund faðmar. Lengd hennar, breidd og hæð eru jöfn.

Og hann mældi múr hennar, hundrað fjörutíu og fjögur alin, eftir manns mæli, sem er engils mælir.

Múrinn var byggður af jaspis, en borgin var af skíru gulli, lík hreinu gleri.

Grundvellir borgarmúrsins voru prýddar hvers kyns dýrum steinum. Fyrsti grundvöllurinn var jaspis, annar safír, hin þriðji kalsedón, hinn fjórði smaragður.

Hinn fimmti sardonix, hinn sjötti sardissteinn, hinn sjöundi krýsólít, hinn áttundi berýl, hinn níundi tópas, hinn tíundi krýsópras, hinn ellefti hýasint, hinn tólfti ametýst.

Og hliðin tólf voru tólf perlur, hvert hlið úr einni perlu. Og stræti borgarinnar var af skíru gulli, sem gegnsætt gler.[2]

Þetta eru vitundarsvið innan orsakalíkamans — þau eru öll táknræn, og þó eru þau öll að verða raunveruleg í fyllingu tíma og rúms.

Tákn uppljómunarinnar

Revelation chapter 4 also likens the light of the one sitting on the throne in heaven to jasper:

And immediately I was in the spirit; and, behold, a throne was set in heaven, and one sat on the throne.

And he that sat was to look upon like a jasper and a sardine stone: and there was a rainbow round about the throne, in sight like unto an emerald.[3]

Sanat Kumara explains the meaning of this vision:

The light of the jasper is the golden light of the crown of life unto the one who opens the door of the crown chakra. I AM opening that door within you, and I AM the open door which no man can shut. I AM opening the door of cycles emanating from the great solar rings of the blue causal body of the Great Divine Director....

I AM the golden light of the mind of God, the jasper that is for the building of the wall of the City Foursquare and for the garnishing of the first foundation. Enlightenment is the foundation of the building of the temple in the Aquarian age. Even so is the jasper the stone of victory, the twelfth, set in gold in Aaron’s breastplate of judgment.[4]

Sources

Pearls of Wisdom, vol. 49, no. 23, June 8, 2006.

Elizabeth Clare Prophet, October 9, 1977.

Elizabeth Clare Prophet, March 8, 1978.

  1. Opbinberunarbókin 21:11.
  2. Opb 16–21.
  3. Rev. 4:2–3.
  4. Elizabeth Clare Prophet, The Opening of the Seventh Seal: Sanat Kumara on the Path of the Ruby Ray, chapter 3.