Annihla-sjálfstortímingarandinn
Annihla er nafn sjálfsvígs-hugsunagervisins (e. entity), kvenpúka sem lokkar fórnarlömb sín með dauðalosta sínum og með því að sækjast eftir ljóskjarna fórnarlamba sinna sem losnar við dauðann. Þessi vera varpar tilfinningum um þunglyndi, verðleysi, vonleysi og algjöra örvæntingu gagnvart lífinu inn í undirvitund þeirra sem eru opnir fyrir þess konar áhrifum. Þegar þessar tilfinningar koma upp á yfirborðið í huga- og geðlíkamanum, hafa þær áhrif á fórnarlambið svo það fellur fyrir hugmyndafræð tómhyggju (e. nihilism), um eigið tilvistarleysi (e. nonexistence).
Þessi vera öðlast ákveðna hlutveru á geðheimasviðinu (e. astral identity) fyrir tilstilli gríðarlegrar uppsöfnunar á orku sem hefur verið misnotuð af öllum þeim sem hafa svipt sig lífi eða látið hugann dvelja við sjálfsvíg. Neikvæð áhrif hennar aukast enn frekar vegna "skuggabaldra" [svartbræðralagsins], sem tæla fórnarlömb sín með aðdráttarafli hins óþekkta, tilfinningu fyrir sætleika dauðans og eigin uppsöfnuðum þunga hugsana sem beinast að sjálfseyðingu eða eyðingu hins guðlega sjálfs sem um tíma var útbreidd hugsýn tómhyggjusinna.
Sjá einnig
Heimildir
Vörslumenn logans - 19. lexía.