Annihla-sjálfstortímingarandinn

From TSL Encyclopedia
Revision as of 12:47, 3 April 2026 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Þessi vera öðlast ákveðna hlutveru á stjörnusviðinu (e. astral identity) fyrir tilstilli gríðarlegrar uppsöfnunar á orku sem hefur verið misnotuð af öllum þeim sem hafa svipt sig lífi eða dvalið í hugsunum um sjálfsvíg. Neikvæð áhrif hennar aukast enn frekar vegna bræðra skuggans, sem tæla fórnarlömb sín með aðdráttarafli hins óþekkta, tilfinningu fyrir sætleika dauðans og eigin skriðþunga í átt að sjálfseyðingu eða eyðingu...")
Other languages:

Annihla er nafn sjálfsvígs-verunnar (e. entity), kvenpúka sem lokkar fórnarlömb sín með dauðalosta sínum og með því að sækjast eftir ljóskjarna fórnarlamba sinna sem losnar við dauðann. Þessi vera varpar tilfinningum um þunglyndi, einskisvirði, vonleysi og algjöra örvæntingu gagnvart lífinu inn í undirmeðvitund þeirra sem hafa meðvitund opna fyrir þess konar áhrifum. Þegar þessar tilfinningar koma upp á yfirborðið í huga- og tilfinningalíkamanum, hafa þær áhrif á fórnarlambið svo það samþykki heimspeki tómhyggju (e. nihilism), um eigið neisun (e. nonexistence).

Þessi vera öðlast ákveðna hlutveru á stjörnusviðinu (e. astral identity) fyrir tilstilli gríðarlegrar uppsöfnunar á orku sem hefur verið misnotuð af öllum þeim sem hafa svipt sig lífi eða dvalið í hugsunum um sjálfsvíg. Neikvæð áhrif hennar aukast enn frekar vegna bræðra skuggans, sem tæla fórnarlömb sín með aðdráttarafli hins óþekkta, tilfinningu fyrir sætleika dauðans og eigin skriðþunga í átt að sjálfseyðingu eða eyðingu Guðsjálfsins, sem um tíma var vinsælt sem heimspeki tómhyggjunnar.

See also

Sources

Keepers of the Flame Lesson 19.