Translations:Vishnu/6/is
Vishnú er alltumlykjandi verndari — verndar soninn í birtingu með guðlegri vitund um bæði æðra sjálfið og and-sjálfið. Hann beitir brandi Orðsins til að tortíma með eldi öflum and-sjálfsins sem myndu hrifsa til sín ljós hins sanna sjálfs áður en það verður sjálfsbirt í Guði. Þessi persónugervingur guðdómsins er verndari hinnar guðdómlegu hönnunar sem er mynduð í loga viskunnar út frá lögmætri nærveru kraftsins. Vishnú endurreisir alheiminn með algræðandi ljósi viskunnar, með hugvísindum sem er hinn sanni máttur hinnar upplýstu alkemísku dulefnafræði (gullgerðarlist) ástarinnar.