Translations:Jesus/16/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:01, 12 May 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "Eftir hallarbyltinguna á Atlantis þar sem Jesús var hrakinn frá völd-um hnignaði gullaldarsiðmenningunni smám saman uns stjórnleysi, villimennska og gripdeildir urðu allsráðandi, svo að völdin runnu að lokum úr greipum Xenos. Þetta hnignunarskeið ríkti frá 30.000–16.000 <small>f</small>.<small>Kr</small>. uns hin mikla siðmenning Póseid rann upp. Jesús birtist aftur í efninu á Atlantis og annars staðar á hnettinum þar sem hans var þörf e...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)

Eftir hallarbyltinguna á Atlantis þar sem Jesús var hrakinn frá völd-um hnignaði gullaldarsiðmenningunni smám saman uns stjórnleysi, villimennska og gripdeildir urðu allsráðandi, svo að völdin runnu að lokum úr greipum Xenos. Þetta hnignunarskeið ríkti frá 30.000–16.000 f.Kr. uns hin mikla siðmenning Póseid rann upp.

Jesús birtist aftur í efninu á Atlantis og annars staðar á hnettinum þar sem hans var þörf ef gott karma fólksins og trúfesti við guðdóminn réttlætti guðlega íhlutun hans. Um það bil 15000 árum f.Kr. sneri Jesús aftur sem Rai, keisari Atlantis. Eins og Tíbetinn Phylos hefur lýst í bók sinni, Íbúi tveggja hnatta, birtist þessi mikli Rai í musteri höfuðborgarinnar, Caiphul, og varð þess valdandi að uppspretta varð til sem nefnist Maxín, þ.e. eldur sólguðsins Incal sem hluti afkomenda Atlantis, Inkarnir í Suður-Ameríku, röktu trú sína til. Þessi ókynti eldur log-aði á altari musterisins í samfleytt 5000 ár. Rai ríkti í 434 daga. Hann endurskoðaði lögin og kom á fót lagabálki sem Atlantis var stjórnað eftir á næstkomandi þúsund árum.