Translations:El Morya/30/is
Árið 1529 skipaði Hinrik VIII Tómas lávarð og kanslara Englands. Um hann skrifaði Erasmus: „Enginn maður gefur betri ráð um alvarleg málefni en ef konungur óskar að létta sér lund, fær hann hvergi annars staðar jafn fjörlegar samræður. Oft eru mál margflókin og rista djúpt sem þarfnast málefnalegra og skynsamlegra úrlausna. More leysir þau þannig að komið er til móts við báða málsaðila. ”Þrátt fyrir miklar vegsemdir og velgengni sóttist More ekki eftir neinum vegtyllum. Hann var áfram opinn og móttækilegur fyrir þörfum almúgans sem hann viðhélt með því að ganga daglega um bakgötur Lundúna til að kynna sér líf fátæklinga. Og jafnvel sem lávarður og kanslari hafði hann það til siðs að ganga daglega inn í dómsalina í Westminster Hall þar sem faðir hans starfaði, krjúpa fyrir honum og biðja hann blessunar.