Translations:El Morya/28/is

From TSL Encyclopedia
Revision as of 14:08, 3 April 2024 by Hbraga (talk | contribs) (Created page with "HERRA TÓMAS MORE, virtur í nútímanum fyrir fjölhæfni sína, fæddist árið 1478 í hjarta Lundúna. Faðir hans, mikilhæfur lögfræðingur og dómari, sá til þess að hann fékk framúrskarandi menntun. Átján ára yfirgaf hann háskólabæinn Oxford með yfirgripsmikla þekkingu á klassíkinni og helgaði sig lögfræðinámi. Tómas var þegar á unga aldri náinn vinur hins virta hollenska hugvísindamanns (húmanista) Erasmusar og naut vaxandi hylli Hi...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)

HERRA TÓMAS MORE, virtur í nútímanum fyrir fjölhæfni sína, fæddist árið 1478 í hjarta Lundúna. Faðir hans, mikilhæfur lögfræðingur og dómari, sá til þess að hann fékk framúrskarandi menntun. Átján ára yfirgaf hann háskólabæinn Oxford með yfirgripsmikla þekkingu á klassíkinni og helgaði sig lögfræðinámi. Tómas var þegar á unga aldri náinn vinur hins virta hollenska hugvísindamanns (húmanista) Erasmusar og naut vaxandi hylli Hinriks konungs VIII sem réð hann til að sinna erindagjörðum erlendis. Tómas gat sér einnig góðan orðstírs fyrir bókmenntaástundun sína. Hann var fyrstur þarlendra höfunda sem var lofaður fyrir enskan prósa, óbundið mál, fyrir verk sitt Ævi Ríkharðs III (Life of Richard III), nákvæmt sagnfræðirit sem Shakespeare fylgdi eftir með því að fylla upp í smáatriðin.