Rúbín

From TSL Encyclopedia
Revision as of 20:22, 11 May 2026 by Hbraga (talk | contribs)
Other languages:

Í hindúískri hefð er rúbín notaður til að styrkja hjartað og blóðrásina. Hann gerir mann djarfan og hugrakkan og eyðir trega og nautnasemi. Samkvæmt Ayurveda bætir hann einbeitingu, veitir andlegan styrk og gerir manni kleift að skynja fíngerða orkustrauma.

Þessi eðalsteinn miðlar orku rúbíngeislans sem auðveldar manni við að stilla sig inn á braut hinna leyndu geisla og þann eindrægna kærleika sem nær út fyrir rauðgula litinn til rúbínrauða litarins. Bæði rúbín og granat eru notaðir sem beinar fyrir hið helga hjarta Jesú og blóð Krists.

Kraftur rúbínsins er svo mikill að þið ættuð að þreifa ykkur áfram þegar þið berið hann. Fylgist með sjálfum ykkur til að sjá hvort ákafinn sé slíkur að þið finnið fyrir því að verða annað hvort reið eða pirruð.

Hinn uppstigni meistari Chananda hefur talað um nauðsyn þess að sýna varkárni þegar rúbínsteinn er borinn:

Og því segi ég ykkur, ráðlegging okkar varðandi þann ljósbeini sem bera skal þar til að þið hafið náð ákveðnum áfanga [í andlegum þroska], sem er ætíð beinir fyrir fjólubláa logann, [en þar er átt við] hinn heilaga ametýststein; til að finna fyrir vellíðan og friðsemd í líkamanum, [einnig kemur] jaðe eða rauðgulur kórall [til greina].[1]

Við ráðleggjum nemum okkar ekki að bera rúbína án umhugsunar. Því sjáið til, rúbínn gæti virkjað krafta á geðheimasviðinu sem er meira en efnislíkaminn ræður við. Þess vegna, ástkæru vinir, þess vegna ættu varnaðarorð til hins hyggna að duga.[2]

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, 18. október 1987.

  1. Ferskjulitaður kórall, ekki rauður.
  2. Hinn ástkæri Chananda, „Twin Flames on the Path of Initiation,“ Pearls of Wisdom, 28. bindi, nr. 32, 11. ágúst, 1985.