Mercury (the planet)/is: Difference between revisions

From TSL Encyclopedia
(Created page with "Þannig sjáum við nú á tímum á jörðinni baráttu háða milli þeirra sem eru af gömlum merg — hinna föllnu sem sköpuðu Merkúrsvélmennið og sona Guðs sem voru skoruðu þá og sköpunar þeirra á hólm. Það eru til svo margs konar vígslur á jörðinni að maður skyldi ætla að það væri nauðsynlegt að verða tíuarma guð eða gyðjur til að vinna verk sín fyrir ljósið! Þetta er sannarlega satt! Og engla-tívarnir og uppstignu meista...")
No edit summary
Tags: Mobile edit Mobile web edit
Line 30: Line 30:
Ástkæru vinir, sigri Merkúrs er ekki enn lokið. Stærri hluti sigursins var unninn, en viss hluti sona ljóssins og hinna föllnu einstaklinga höfðu ekki náð tilskildum þroska. Þeim var því úthlutað öðrum plánetubústöðum og kerfum. Sumir hinna föllnu stilltu strengi sína við þróunarferil [[dragbítanna]] sem að lokum endurholdguðust á jörðinni. Sumir af sonum og dætrum Guðs ferðuðust til [[Venusar]] og fylgdu síðar Sanat Kumara til jarðar.
Ástkæru vinir, sigri Merkúrs er ekki enn lokið. Stærri hluti sigursins var unninn, en viss hluti sona ljóssins og hinna föllnu einstaklinga höfðu ekki náð tilskildum þroska. Þeim var því úthlutað öðrum plánetubústöðum og kerfum. Sumir hinna föllnu stilltu strengi sína við þróunarferil [[dragbítanna]] sem að lokum endurholdguðust á jörðinni. Sumir af sonum og dætrum Guðs ferðuðust til [[Venusar]] og fylgdu síðar Sanat Kumara til jarðar.


Þannig sjáum við nú á tímum á jörðinni baráttu háða milli þeirra sem eru af gömlum merg — hinna föllnu sem sköpuðu Merkúrsvélmennið og sona Guðs sem voru skoruðu þá og sköpunar þeirra á hólm. Það eru til svo margs konar vígslur á jörðinni að maður skyldi ætla að það væri nauðsynlegt að verða tíuarma guð eða gyðjur til að vinna verk sín fyrir ljósið! Þetta er sannarlega satt! Og [[engla-tívarnir]] og uppstignu meistararnir veitir ykkur marga líkama og marga arma og margar orkustöðvar til að leysa úr læðingi almætti Guðs — sérstaklega þegar þið hraðið þeim krafti með hinu blíða afsali ykkar.
Þannig sjáum við nú á tímum á jörðinni baráttu háða milli þeirra sem eru af gömlum merg — hinna föllnu sem sköpuðu Merkúrsvélmennið og sona Guðs sem skoruðu þá og sköpunar þeirra á hólm. Það eru til svo margs konar vígslur á jörðinni að maður skyldi ætla að það væri nauðsynlegt að verða tíuarma guð eða gyðjur til að vinna verk sín fyrir ljósið! Þetta er sannarlega satt! Og [[engla-tívarnir]] og uppstignu meistararnir veitir ykkur marga líkama og marga arma og margar orkustöðvar til að leysa úr læðingi almætti Guðs — sérstaklega þegar þið hraðið þeim krafti með hinu blíða afsali ykkar.


<div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr">
<div lang="en" dir="ltr" class="mw-content-ltr">

Revision as of 13:34, 23 June 2025

Other languages:
 
Hluti af greinaröð um
Sólarkerfi



   Sólin   
Helíos og Vesta
Musteri sólarinnar
Sólblettir



   Reikistjörnur   
Merkúr
Venus
Frelsisstjarnan (Jörðin)
Mars
Júpíter
Satúrnus
Úranus
Neptúnus
Plútó

Þróun reikistjarna



   Fyrrum plánetur   
Tíamat
Hedron
Maldek



   Aðrir hnettir   
Tunglið
Lilið
Vúlkan
Smástirni
Halastjörnur
Halastjarnan Kóhoutek

Raunveruleg litmynd af Merkúr, sem geimfarið Messenger tók (6. október 2008).

Reikistjarnan „Merkúr“ er á stærð við tunglið okkar, mjög lítil, og orkuvafningar hennar eru þéttir. Hún er miklu nær sólinni en jörðin. Hún fær mikið ljós frá sólinni og er mjög heit reikistjarna, þannig að við verðum að auka vitund okkar og orkutíðni til að standa jafnvel Merkúr á sporði. Íbúar Merkúrs hafa risið upp í spíral á samskiptasviðinu og þá má líta með bláa hjálma og gullhjálma sem sýna gullna vitund sólarinnar.

Þar sem Merkúr er nær sólinni er hann nær hvíta eldkjarnanum. Þegar Manvantara lýkur og allt sólkerfið snýst aftur inn í hjarta Helíos og Vestu, þá verða reikistjörnurnar sem eru næst sólinni þær sem stíga fyrst aftur upp til himna. Þannig að í stigveldisröð reikistjarnanna sjáum við að þeir sem eru nær sólinni eru að búa sig undir himnaförina. Annað hvort rísa þeir upp og halda sjálfsmynd sinni og vinna uppstigningu sína eða þeir leysast upp. Það verður örlög hverrar reikistjarna í sólkerfinu: annað hvort að ganga í gegnum annan dauðann, að sundrast og vera ekki lengur til vegna þess að hún hefur ekki staðist prófraun sína, eða að stíga upp og verða varanleg frumeind í tilveru okkar eigin sólar, Helíos og Vestu.

Merkúr er ein af þeim reikistjörnum sem ætlaðar eru að stíga upp og hnitmiðað málfar sem einkennir íbúa Merkúrs er verkun hvítelds kjarnans, að þurfa ekki að fara lengra en það sem nauðsynlegt er til að miðla skilaboðum.

Barátta ljóss og myrkurs á Merkúr

El Morya útskýrir sögu Merkúrs og baráttu ljóss og myrkurs þar:

Lífsbylgjur sona og dætra Guðs sem hafa þróast frá Merkúr, sem hafa þjónað með Sanat Kumara og sem nú búa á jörðinni, koma frá þróun sem við þekktum fyrir löngu síðan. Í þeirri plánetu skiptust á ljós og skuggar. Hér, þar sem tákn tvíburamerkisins er hugur Guðs til einbeittrar aðgerðar, var ljósinu brenglað í vélrænni sköpun vélmennis í eftirlíkingu af huga tvíburanna. Algjör svívirða gegn hinum almáttuga! Og samt héldu hinir föllnu áætlun sinni áfram — og það virtist um tíma sem þeir myndu sigra!

Þeir sköpuðu þá vélmennafyrirbrigði með yfirborðskennda getu til að takast á við jarðbundnar upplýsingar en skorti dýpt kvíslar kærleiks/visku sem koma fram úr þrígreinda loganum. Þetta, að því er virtist, hagnýta en samt andlega óhagnýta vélmenni hóf að yfirbuga þessa siðmenningu. Áskorunin fyrir syni og dætur Guðs var að nota þá tvíburahugann til að afsanna og hrekja, lasta, binda! og fjarlægja frá Merkúr þessar birtingarmyndir — algjört valdrán á sköpun hins almáttuga.

Þegar við sáum áskorunina og eins og guðinn Merkúr kenndi okkur, vissum við að óbilandi hollusta við vilja Guðs, að draga til sín orku með demantsoddi æðra sjálfsins, að beita sverði bláa logans og að ná tökum á virkni fóhatískra úrlausna myndi leiða til sigurs.

Fóhatískir úrlausnir, mín blessaðu, eru sameindaformúlur sem eru notaðar til að losa orku orkustöðvanna á ákveðinn hátt. Þessi kraftur, þegar hann er kóðaðar í ákveðnum birtingarmyndum, getur komið fram á efnissviðinu í hvaða birtingarmynd sem er, hvaða styrkleika sem er af völdum geislanna sjö fyrir ákveðna aðgerð eða áskorun. Þið eruð ykkur þess áskynja að svartagaldursmennirnir hafa brenglað þessar úrlausnir og stillt hinar brengluðu úrlausnir sínar á tónlist, spilað þann takt og þá tónlist og þannig valdið því að gríðarlegt orkumagn hefur farið til spillis gegn börnum Guðs. Þetta hafið þið séð og heyrt með eigin augum,[1] og þess vegna skiljið þið það sem ég tala um.

Nú, það var þá sökum djúprar löngunar okkar til að frelsa sálir á þróunarbraut Merkúrs (sem höfðu ekki bolmagn gegn vélmennasköpuninni) að við efldum færni okkar að vilja Guðs. Algjör brenglun á algjöru valdi krefst mótvægis með styrk hinnar Mikla miðlægu sólarsegulsorku. Þið munið að sigur Jesú Krists gaf honum þann vald yfir himni og jörð,[2] burði til að sigra óvininn með ákalli sínu.

Guð gaf okkur, þegar við háðum heimsbaráttu á Merkúr, þennan kraft, þennan mátt – aðeins vegna þess að við vorum tilbúin að jafna þregreinda logann, að sækjast eftir visku og mætti ​​viskunnar, að efla slíkan kærleika í hverri frumu og í loga hverrar frumu, þannig að árur okkar væru svo gegnsýrðar af kærleika að um megn væri að brengla svo mikið sem snifsi af krafti Guðs með nokkurri harðstjórn.

Ástkæru vinir, þið hafið ekki fengið smjörþef af þessu afli sem ég hef talað um í þúsundir ára. Og þess vegna skiljið þið ekki beint hvað kemur fyrir mennska sál í návist slíks afls. Það verður kærleiks- og viskuafl – þegar það lýtur ekki stjórnleysi – algjörrar harðstjórnar, algjörrar illsku, einræðis yfir sálum! ...

Ástkæru vinir, sigri Merkúrs er ekki enn lokið. Stærri hluti sigursins var unninn, en viss hluti sona ljóssins og hinna föllnu einstaklinga höfðu ekki náð tilskildum þroska. Þeim var því úthlutað öðrum plánetubústöðum og kerfum. Sumir hinna föllnu stilltu strengi sína við þróunarferil dragbítanna sem að lokum endurholdguðust á jörðinni. Sumir af sonum og dætrum Guðs ferðuðust til Venusar og fylgdu síðar Sanat Kumara til jarðar.

Þannig sjáum við nú á tímum á jörðinni baráttu háða milli þeirra sem eru af gömlum merg — hinna föllnu sem sköpuðu Merkúrsvélmennið og sona Guðs sem skoruðu þá og sköpunar þeirra á hólm. Það eru til svo margs konar vígslur á jörðinni að maður skyldi ætla að það væri nauðsynlegt að verða tíuarma guð eða gyðjur til að vinna verk sín fyrir ljósið! Þetta er sannarlega satt! Og engla-tívarnir og uppstignu meistararnir veitir ykkur marga líkama og marga arma og margar orkustöðvar til að leysa úr læðingi almætti Guðs — sérstaklega þegar þið hraðið þeim krafti með hinu blíða afsali ykkar.

It was in that experience on Mercury that some of you who are present here with me tonight learned the art of dealing with the Luciferians according to their terms of war and the warfare of worlds. Understanding the strategy of the fallen ones, you also had the full awareness of God’s strategy of light—which is love in every form, in every manifestation—that simply reverses every force and momentum, point/counterpoint, somewhat like the martial arts which are taught today which have come out of the East, except in a much more refined manner because of the development of greater energies in the chakras.

Here, then, we find ourselves continuing the challenge. And the victory is not yet—and the victory always was, always is, and always shall be. It is a question of bringing into alignment the parallel lines of the Gemini Mind for the victory above to be manifest here below!

Chelas of the will of God, I fling to you the challenge in this hour! That challenge is to make yourself one—and thereby be eligible for the lowering of the electrode through the Elohim Apollo that will allow the previous electrode already anchored[3] to fulfill a greater capacity whereby you may enter in to the mind of God and, through love and only love, key the power for the victory![4]

Sjá einnig

El Morya

Þróun reikistjarna

Heimildir

Elizabeth Clare Prophet, 26. apríl 1974.

  1. Vísar til “The Science of Rhythm for the Mastery of the Sacred Energies of Life,” („Vísindaleg umfjöllun um takt í tónlist til að ná tökum á helgum orkustraumum lífsins,“) í fyrirlestri sem Elizabeth Clare Prophet hélt 7. október 1977. Fyrirlesturinn innihélt glærusýningu sem sýndi notkun og misnotkun takts, hljóðs og orku í tónlist og áhrif þess á mannsáruna, með myndskreyttum pastelmyndum eftir boðberann.
  2. Matt 28:18.
  3. Refers to the dispensation announced by the Elohim Apollo, July 6, 1975—the release of an increment of the light of illumination “delivered only once in ten thousand years for the elevation of consciousness and the centering of that consciousness in the crown [chakra].... Now the rod coming from the Central Sun by cosmic edict—the stepping-up of the mind of humanity! And the Solar Logoi implant that rod in consonance with the Christ Self of each one. And it is done! And mankind may, if they choose, employ the rod to enter a new era and a golden age!” See “An Increment of Light from the Holy Kumaras,” in The Great White Brotherhood in the Culture, History, and Religion of America, p. 269–70. On October 7, 1977, Apollo announced that some who had passed certain initiations over many thousands of years now stood ready to inherit a portion of the mind of God. “I announce to you this initiation so that you might feel the urge to quickly place your atoms and cells in alignment with God’s mind so that you, too, might receive in each successive cycle those increments that are to be given before the year 2001.” See Pearls of Wisdom, vol. 21, p. 97.
  4. El Morya, October 8, 1977, “The Gemini Mind: For the Governing of Society and the Self,” Pearls of Wisdom, vol. 24, no. 43, October 25, 1981.