Asúrsteinn - Lapis lazuli

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Lapis lazuli and the translation is 100% complete.
Other languages:

Ásúr steinn, öðru nafni Lapis lazuli, er einn þeirra eðalsteina sem El Morya notar mest. Logi El Morya berst í gegnum þennan gimstein og hann er merki og tákn Reglu miskunnsama Samverjans. Hann ber með sér mjög glaðværa, græðandi, fagnaðarríka og gefandi orku.

Besti og dásamlegasti asúrsteinninn kemur frá Afganistan. Hann er fallegt, blátt skreytingarefni sem samanstendur af bláu steintegundunum hauyníti og sódalíti. Litlir kristallar úr pýríti veita honum gylltu doppurnar sem gera hann enn verðmætari.

Safírsteinn í fornum heimildum eða í Gamla testamentinu, er í raun asúrsteinn. Flestar heimildir segja að boðorðin tíu hafi verið skrifuð á stykki úr asúrsteini, þar sem safír fannst aldrei í þeirri stærð sem hefði þurft fyrir boðorðin tíu.

Súmerar trúðu því að sá sem bæri verndargrip úr asúrsteini (lapis lazula) bæri með sér návist guðs — við myndum segja af upphöfnum meistara eða dýrlingi. Myndina af Ma eða Sannleikanum í Egyptalandi hinu forna bar egypski yfirdómarinn, grafna í asúrstein. Í einu af elstu ritunum um lækningamátt gimsteina, ritað á þriðju öld f.Kr., var talið að asúrsteinn og safír ynnu gegn vélabrögðum myrkraaflanna og löðuðu að sér liðsinni og hylli anda ljóss og visku.

Edgar Cayce mælti oftar með asúrsteinum í lestrum sínum en nokkrum öðrum steini. Hann sagði að hann „kæmi sér vel fyrir almennt heilbrigði líkamans, til styrkingar, til að öðlast sjálfstraust og samhljóm við óendanleikann.“ Segja má að allir þessir eiginleikar heyri undir fyrsta geislann. Asúrstein ætti að bera við húðina, eins og alla steina, ef maður vill að efnislíkaminn sogi í sig eiginleika steinsins. Séu þeir ekki bornir við húðina eru þeir samt sem áður andlegir brennideplar, en maður dregur ef til vill ekki orkuna í sig í sama mæli.

Litið var á safír og asúrstein sem tákn hreinleika. Samkvæmt kaldeskri stjörnuspeki laut hann stjórn Venusar.

Morya hefur útskýrt að orkutitringur lapis-asúrsteinsins komi ekki einungis frá honum sjálfum — hann eigi sér uppruna á Venus og ber því einnig með sér loga Guðs-móðurinnar og Guðs-móðurljós Venusar. Asúrsteinninn gagnast við að samstilla sálina við hina upprunalegu guðlegu ráðagerð, sem við bárum með okkur frá Meginsólinni.

Hinn ástkæri Alfa hefur talað um gildi þess að hafa asúrstein í brennidepli:

Þess vegna, ástkæru vinir, komist í skilning um að það eru þrír steinar sem geta borið næga orkutíðni á jörðinni ykkur til að tryggja afkomu ykkar. Þessir hafa verið notaðir ekki aðeins um allan heim heldur einnig á öðrum reikistjörnum. Þannig er það undir ykkur komið [hvaða not þið hafið af honum], en ég útskýri hvaða lögmál liggur að baki að innan ametýstsins, innan asúrsteinsins og innan jaðe-steinsins munuð þið finna geymslurúmtak, jafnvel eins og það væri örgjörvi, að varðveita ljós, orkutitring og Orðið. Náttúrulegir kristallar úr jörðinni eru einnig valkostir fyrir altarið. Það er ekki nauðsynlegt að þið útvegið ykkur eitt eða annað sem þið hafið ekki ráð á, en jafnvel lítill vottur nægir til að tryggja ykkur návist fórnar minnar á þessum degi.[1]

Heimildir

Fyrirlestrar eftir Elizabeth Clare Prophet 2. desember 1984; 2. október 1987; 17. október 1987; 12. febrúar 1988; 15. apríl 1988; 4. desember 1988.

  1. Alpha, “Alpha’s Agenda,” Pearls of Wisdom, 30. bindi, nr. 38, September 20, 1987.